Eignin er seld með fyrirvara
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja endaíbúð með sérinngangi ásamt stæði í bílageymslu á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað við Seilugranda í Vesturbænum.Eignin er skráð 116,3 fm (þar af er bílastæði sem fylgir eigninni skráð 30,9 fm).
Íbúðin sjálf er 85,4 fm.Að auki fylgir íbúðinni stór geymsla - geymslan er EKKI inni í birtri fermetratölu eignarinnar. Stærð geymslunnar er ca 12 fm.Séreignarfermetrar eignarinnar eru því um 97,4 fm (íbúð 85,4 fm + geymsla 12 fm)
Lýsing eignar:
Forstofa: flísar á gólfi, fataskápar.
Setustofa/borðstofa: rúmgóð og björt, harðparket á gólfi, útgengi á stóra afgirta verönd sem er bæði hellulögð og með timburpalli, veröndin snýr í suðvestur.
Eldhús: hvít endurnýjuð innrétting, gott skápapláss, viðarborðplata, borðkrókur, gluggi.
Hjónaherbergi: harðparket á gólfi, fataskápar.
Barnaherbergi: rúmgott herbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og hluta veggja, upphengt salerni baðkar, hvít innrétting undir vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðinni fylgir sérmerkt
bílastæði í bílakjallara, innangengt úr húsinu.
Sameiginleg
hjóla og vagnageymsla.
Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu (Eiðistorg og Grandinn í næsta nágrenni) fallegar gönguleiðir við sjávarsíðunaNánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma
585-8800 eða á netfanginu
[email protected]Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s.
865-8515 /
[email protected]