Eignin er seld og er í fjármögnunarferli
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu:
Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með fallegu útsýni í nýlega viðgerðu húsi við Fífusel 9 í Seljahverfi.Eignin er skráð 106,5 fm, þar af geymsla 9,7 fm.
Lýsing eignar:Forstofa: flísar á gólfi, fataskápar.
Eldhús: máluð viðarinnrétting, parket á gólfi, borðkrókur, gluggi.
Þvottahús/geymsla: inn af eldhúsi er þvottahús með glugga og þar innaf er búr/geymsla.
Setustofa: rúmgóð og björt, parket á gólfi, opin við eldhúskrók, útgengi á stórar svalir sem snúa í suður og eru með miklu útsýni.
Sjónvarpshol: framan við herbergjagang, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápar.
Barnaherbergi 1: gott herbergi, parket á gólfi
Barnaherbergi 2: einnig gott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og hluta veggja, baðkar, innrétting undir vaski, speglaskápar ofan við vask, sturtuklefi.
Húsið var
múrviðgert og
málað að utanverðu 2021-2022
Þakjárn,
þakappi og
þakrennur endurnýjaðar 2021
Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]