Eignin er seld og er í fjármögnunarferli
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu: Afar fallegt og mjög mikið endurnýjað endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á rólegum og fjölskylduvænum stað við Ásbúð í GarðabæEignin er 244 fm, þar af innbyggður tvöfaldur bílskúr 35,3 fm. Lýsing eignar:
Efri hæð
Eldhús: allt endurnýjað 2020, hvít falleg KVIK innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, eldunareyja með innbyggðum skúffum, quartz borðplötur, Siemens tæki, stórir gluggar með fallegu útsýni til norðurs og á Esjuna.
Setustofa: mjög rúmgóð og björt setustofa með aukinni lofthæð, nýlegt Bjelin parket á gólfum.
Borðstofa: gengið niður tvö þrep í borðstofuna, opin við stofu og stiga, parket á gólfi.
Útgengt í skjólgóðan garð sem snýr í suður, hellulagt næst húsinu og þakskyggni nær yfir hluta af hellulagðri veröndinni. Búið er að leggja lagnir fyrir heitan pott út í garðinn.
Svefnálma
Herbergi 1: mjög rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, fataherbergi með nýlegum innréttingum (2020) opið við hjónaherbergi.
Herbergi 2: gott barnaherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: allt endurnýjað 2020, flísar á veggjum og gólfi, sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inn í, innrétting undir vaski, baklýstur spegill ofan við vask, stórt baðkar.
Neðri hæð:
Forstofa/hol: flísar á gólfi, fatahengi, stór gluggi við hol/stiga sem nær milli hæðanna og gefur mikla birtu inn í húsið.
Baðherbergi: við forstofu, flísar á gólfi og veggjum, sturta með glerhlið sem gengið er slétt inn í, innrétting undir vaski, upphengt salerni, handklæðaofn, gluggi.
Svefnherbergi 3: mjög rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: einnig rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Þvottahús: hvít mikil innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, tengi fyrir vélar í þægilegri vinnuhæð, skolvaskur, skúffur og fatahengi til móts við innréttingu, nýlegt epoxy á gólfi.
Bílskúr: innbyggður í húsið, innangengt er í skúrinn úr húsinu. Nýlegt epoxy á gólfum, tvöföld bílskúrshurð. Hiti, rafmagn og rennandi vatn.
Hellulagt
bílaplan með tvöfaldri innkeyrslu og snjóbræðslu er framan við húsið.
Sorptunnuskýli er innbyggt í húsið að framanverðu, lítil garðáhaldageymsla við skýlið.
Viðhald/endurbætur· Allar neysluvatnslagnir hússins voru endurnýjaðar árið 2020
· Hiti var lagður í gólf hússins árið 2020 (allsstaðar nema í svefnherbergjum, þvottahúsi og bílskúr)
· Eldhús, baðherbergi á efri hæð og öll gólfefni hússins voru endurnýjuð árið 2020 auk þess sem loft á efri hæð var klætt með hljóðvistarplötum. Innihurðir hafa allar verið endurnýjaðar.
· Talsverðar endurbætur á rafmagni frá 2020, m.a. hefur rafmagnstafla verðið endurnýjuð og hleðslustöð sett upp við anddyri
· Múrviðgerð var gerð á gafl hússins auk þess sem hann var málaður 2022
· Gluggalistar endurnýjaðir að hluta á stofugluggum 2023
Vel skipulagt fjölskylduhús á vinsælum stað í Garðabæ - stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og FG
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]