Opið hús fimmtudaginn 6. febrúar frá kl 16:30 til 17:15 - Öldugata 35, 101 Reykjavík - íbúð 0201
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Afar glæsileg og algjörlega endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í fjögurra íbúða húsi við Öldugötu í gamla VesturbænumEignin er 104,5 fm (þar af geymsla 6,5 fm)
Eignin hefur verið endurnýjuð að innanverðu að nær öllu leyti á undanförnum árum á vandaðan hátt.Lýsing eignar:
Forstofa/hol: Tengir saman rými íbúðarinnar, vinylparket á gólfi, fataskápar.
Eldhús, borðstofa og stofa eru opnar út í eitt.Eldhús: Falleg baselituð innrétting með mjög góðu skápa og vinnuplássi, eldunareyja sem unnt er að sitja við, marmaraborðplötur, gluggi.
Setustofa/borðstofa: Mjög rúmgóð og björt, vinylparket á gólfi, sérmsmíðuð marmaraklædd gólfhilla og bókahilla eru við enda stofunnar sem setja mikinn svip á íbúðina, útgengt á skjólgóðar og sólríkar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott herbergi, vinylparket á gólfi, fataskápar.
Svefnherbergi 2: Einnig gott herbergi, vinylparket á gólfi, fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, upphengt salerni, flísalögð sturta með glerhlið sem gengið er slétt inní, vegginnbyggð blöndunartæki í sturtu og vaski, góð innrétting undir vaski, skápur fyrir ofan salerni,
tengi fyrir þvottavél og þurrkara innfelld í vegg aftan við baðhurðina, hiti í gólfi.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla í kjallara hússins, einnig fylgir aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi í kjallara.
Fallegur, sólríkur og skjólgóður sameiginlegur garður er aftan við húsið, útgengi í garðinn af gangi i kjallara.
Sameign og stigahús eru snyrtileg, nýtt teppi var lagt á stiga og stigahúsið málað um mitt ár 2021.
Neysluvatnslagnir innan íbúðar endurnýjaðar 2021/2022
Raflagnir og tafla innan íbúðar endurnýjuð 2021/2022
Einstaklega vönduð og fallega endurnýjuð íbúð á frábærum stað - stutt í skóla og leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina og Grandann.Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma
585-8800 eða á netfanginu
[email protected]Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s.
865-8515 /
[email protected]Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins.