Hjarðarhagi 24 107 Reykjavík (Vesturbær)
Hjarðarhagi 24 , 107 Reykjavík (Vesturbær)
84.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 95 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1956 41.000.000 69.700.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 95 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1956 41.000.000 69.700.000 0

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu:

Falleg, björt og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Hjarðarhaga í Vesturbænum

Eignin er 95,8 fm, þar af geymsla 10,7 fm.

Lýsing eignar:
Forstofa/hol: tengir saman rými íbúðarinnar, parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: endurnýjað fyrir fáeinum árum, hvít innrétting, gott skápapláss, flísar á gólfi með gólfhita, borðkrókur, gluggi. Tengi fyrir þvottavél er í eldhúsinnréttingunni. 
Svefnherbergi: mjög rúmgott herbergi, parket á gólfi, hvítir endurnýjaðir fataskápar.
Setustofa: rúmgóð og björt, parket á gólfi, útgengt á svalir sem snúa í suðvestur. Væri unnt að nýta sem svefnherbergi.
Borðstofa: einnig rúmgóð, parket á gólfi. Útdraganlegar rennihurðir aðskilja setustofu og borðstofu.
Baðherbergi: flísar á veggjum og gólfi, hvítir skápar, baðkar.

Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði á lóðinni sunnan við húsið.
Íbúðinni fylgir mjög rúmgóð sérgeymsla í kjallara hússins - einnig fylgir íbúðinni geymsluskápur.
Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegri dekkjageymslu, smíðaverkstæði til að sinna minniháttar viðhaldi og sameiginlegu þvottahúsi.
Þá er einnig mjög rúmgott sameiginlegt leikherbergi fyrir börn í kjallara hússins.

Viðhald og endurbætur
Þakjárn endurnýjað að hluta, yfirfarið að hluta og málað árið 2020

Norður og vesturhliðar hússins voru múrviðgerðar, málaðar og sílanbornar árið 2020
Gluggar á austurhlið voru endurnýjaðir árið 2020. 
Þakjárn og þakrennur yfir þremur stigahúsum voru endurnýjaðar 2023
Skólplagnir undir húsinu voru endurnýjaðar 2007

Frábær staðsetning, stutt í alla helstu verslun og þjónustu, leik og grunnskóli í næsta nágrenni sem og Háskóli Íslands - göngufæri við miðborgina

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.