Sunnubraut 47 200 Kópavogur
Sunnubraut 47 , 200 Kópavogur
230.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 195 m2
HERBERGI 6 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 3 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1992 78.850.000 148.100.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 195 m2
HERBERGI 6 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 3 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1992 78.850.000 148.100.000 0

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 
 
Afar glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með miklu og óhindruðu sjávarútsýni á mjög eftirsóttum stað við Sunnubraut í Kópavogi
Góð aðkoma er að húsinu neðst í götunni - bílskúr með innkeyrslu fyrir framan og auka bílastæði inná lóðinni þar við hliðina.

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / [email protected] 

Lýsing eignar:
Forstofa: flísar á gólfi, fatahengi og skúffur framan við forstofu. Gestasalerni: við forstofu, flísar á gólfi, innrétting undir vaski, gluggi.
Eldhús: innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, parket á gólfi, borðaðstaða í sólskála. Úr sólskálanum er útgengt á timburverönd sem nýtur stórglæsilegs útsýnis út á sjóinn til Bessastaða og út voginn. Eldhúsið er einnig opið við borðstofu.
Borðstofa: rúmgóð borðstofa er opin við eldhús, parket á gólfi, borðstofa er opin við setustofu. 
Setustofa: stofan er rúmgóð og björt með aukinni lofthæð, parket á gólfi, arinn, mikið og glæsilegt útsýni úr stofunni út á hafið.
Sjónvarpshol: parket á gólfi, mikið útsýni, útgengt í garðinn sunnan við húsið, rennihurð við stofu/eldhúshluta hússins.
Svefnherbergi 1: rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, útgengt í garðinn til suðurs, flísalagt við svalahurð, fataskápar.
Svefnherbergi 2: rúmgott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 3: einnig rúmgott barnaherbergi, parket á gólfi. 
Baðherbergi: flísar á gólfi, innrétting undir vaski, baðkar, sturtuklefi, gluggi. Baðherbergið þarfnast endurnýjunar.
Þvottahús: innst í svefnálmu er gengið inn í stórt þvottahús. Flísar á gólfi, hvít innrétting með góðu vinnuplássi, efri og neðri skápar, skolvaskur, gluggi og útgengt út á lóðina til austurs framan við bílskúrinn.
Úr þvottahúsi er einnig innangengt í bílskúrinn sem er með hita, rafmagni og rennandi vatni. Innst í skúrnum er búið að stúka af herbergi með gluggum sem vísa að sjónum. Einnig er útgengt úr herberginu í garðinn sunnan við húsið.

Lóðin umhverfis húsið er fullfrágengin, falleg og vel hirt. Timburpallar eru við húsið á tveimur stöðum, þ.e. á suður og vesturhlið. Heitur pottur er við húsið sunnanmegin. Einnig er lóðin hellulögð að hluta og tyrfð að hluta.
Hellulagt bílastæði/innkeyrsla framan við og meðfram húsinu vestanmegin.

Hér er um að ræða einlyft einbýlishús á einstakri sjávarlóð á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Kópavogi. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu, íþróttasvæði Breiðabliks í næsta nágrenni. Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði við sjávarsíðuna alveg við höndina.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.