Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg, björt og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð í góðu steinhúsi við Grettisgötu 31 í miðborg Reykjavíkur
Eignin er 81,2 fm (þar af geymsla 4,9 fm)Lýsing eignar:Forstofa/hol: Tengir saman rými íbúðarinnar, harðparket á gólfi, innfelldir skápar.
Eldhús: Endurnýjað fyrir fáeinum árum, opið við stofu, dökk innrétting með viðaráferð, gluggi, borðaðstaða.
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt, útsýni upp Holtið að Hallgrímskirkjuturni, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápar, vinnuborð áfast við vegg.
Svefnherbergi 2: Gott barnaherbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Fallega endurnýjað árið 2022, flísar á veggjum og gólfi, sturtuklefi með glerhurðum, upphengt salerni, innrétting undir vaski.
Sameign er mjög snyrtileg
Sérgeymsla í kjallara fylgir íbúðinni, hillur í geymslu. Íbúðinni fylgir einnig aðgangur að
sameiginlegu þvottahúsi og
þurrkherbergi í kjallara. Garður fyrir aftan hús með þvottasnúrum.
Húsið hefur fengið jafnt og gott viðhald í gegnum tíðina. Húsið var múrviðgert og málað að utan 2022, þakjárn var endurnýjað 2006. Frárennslislagnir undir húsinu voru fóðraðar 2012. Gluggar og gler í stofu og eldhúsi voru endurnýjuð 2020. Frekari viðhaldslýsingu er hægt að nálgast hjá fasteignasölu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu
[email protected]Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 /
[email protected]Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 /
[email protected]