Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg og björt stúdíó / 2ja herbergja íbúð með frábæru útsýni á 12. hæð við Austurbrún
Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni yfir borgina, sundin, Esjuna og innsiglinguna að Reykjavíkurhöfn svo eitthvað sé nefnt.Lýsing eignar:
Forstofa/hol: Harðparket á gólfi, fataskápar.
Setustofa: Björt stofa, harðparket á gólfi, útgengi á svalir með glæsilegu útsýni.
Eldhús: Opið við stofu, harðparket á gólfi, upphafleg innrétting, gluggi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, baðkar.
Svefnkrókur: opinn við stofu, fataskápur, væri unnt að slá upp vegg og loka af frá stofu með inngönguhurð.
Aftan við fataskápinn í anddyrinu er lítið geymslurými.
Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi á jarðhæð.
Vel staðsett íbúð - stutt í alla helstu verslun og þjónustu og helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins.Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]