Opið hús fimmtudaginn 22. maí frá kl 17:00 til 17:30 - Kelduhvammur 18, 220 Hafnarfjörður - íbúð 0101
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð (neðri hæð) með sérinngangi í keðjuhúsi við Kelduhvamm í Hafnarfirði
Eigninni fylgir stór afgirtur garður með sérafnotarétti, útgengt í garðinn úr setustofu.Eignin er skráð 113,1 fm hjá HMS (þar af geymsla 8,4 fm)Lýsing eignar:Forstofa/hol: Flísar á gólfi, fataskápur/fatahengi. Hol framan við forstofu tengir saman rými íbúðarinnar, harðparket á gólfi.
Setustofa: Gengið niður tvö þrep niður í rúmgóða og bjarta setustofu/borðstofu, harðparket á gólfi, útgengi í stóran afgirtan garð sem er með timburpöllum að hluta og tyrfður að hluta.
Eldhús: Harðparket á gólfi, hvít innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, borðkrókur, gluggi.
Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott hjónaherbergi, harðparket á gólfi, nýlegir fataskápar (2021).
Svefnherbergi 2: Gott herbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, hvít skápainnrétting undir vaski og veggskápar ofan við vask, baðkar með glerhlið, upphengt salerni, handklæðaofn, gluggi.
Þvottahús: Mjög rúmgott þvottahús er innan íbúðar, flísar á gólfi, innrétting með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð og skápar ofan og neðan við vélarnar, miklir skápar og hólf fyrrir ísskáp, innrétting með neðri skápum að hluta og skolvaskur.
Eigninni fylgir rúmgóð (8,4 fm)
sérgeymsla í kjallara hússins.
Sameigineg
hjólageymsla er á jarðhæð hússins.
Viðhald/endurbæturOfnar íbúðarinnar voru endurnýjaðir 2024
Þvottahús var allt endurnýjað árið 2023
Nýtt harðparket lagt á íbúðina árið 2023.
Timburpallur í garði var smíðaður 2021
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]