Lautargata 6
210 Garðabær
Lautargata 6
, 210 Garðabær
144.000.000 Kr.
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Glæsileg útsýnisíbúð á 4. hæð í nýlegu húsi (2023) við Lautargötu í Urriðaholti - íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu á jarðhæð hússins.
Íbúðin er staðsett í innsta húsinu við Lautargötu, alveg við Heiðmörkina. Aukin lofthæð er í íbúðinni (2,75 m).Eignin er samtals 139,3 fm (þar af geymsla á jarðhæð 11,8 fm)
Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / [email protected] eða Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / [email protected]
Lýsing eignar:
Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápar.
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt, opin við eldhús, harðparket á gólfi, glæsilegt útsýni að Vifilsstöðum, Heiðmörk og víðar.
Borðstofa: Opin við eldhús, harðparket á gólfi, útgengi á skjólgóðar svalir sem snúa í suður.
Eldhús: Ljósgrá innrétting með miklu skápa og vinnuplássi, eldunareyja sem unnt er að sitja við, quartz borðplötur, innfelld tæki, loft niðurtekin að hluta með innfelldri lýsingu.
Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataherbergi inn af.
Svefnherbergi 2: Einnig gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inní, ljósgrá innrétting undir vaski og efri skápar, quartzborðplata, handklæðaofn, upphengt salerni.
Þvottahús: Innan íbúðar (inn af baðherbergi), flísar á gólfi, innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara í hentugri vinnuhæð.
Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðari bílageymslu á jarðhæð hússins.
Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla á jarðhæð hússins.
Afar glæsileg íbúð í góðu og aðgengilegu húsi á eftirsóttum stað í Urriðaholti- stutt í falllegar gönguleiðir og útivistarsvæði í og við Heiðmörkina.
Örstutt í alla helstu verslun og þjónustu - stutt í helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisinsNánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma
585-8800 eða á netfanginu
[email protected]Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s.
865-8515 /
[email protected]Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s.
864-8800 /
[email protected]