Opið hús: 11. desember 2025 kl. 16:30 til 17:00.
Opið hús fimmtudaginn 11. desember frá kl 16:30 til 17:00 - Rekagrandi 6, 107 Reykjavík Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð ásamt á eftirsóttum stað við Rekagranda í Vesturbænum.Lýsing eignar:
Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Eikarinnrétting, gott skápa og vinnupláss, eyja áföst við vegg, steinn á borðum, eldhús er opið við stofu.
Setustofa: Rúmgóð og björt, harðparket á gólfi, útgengt á svalir sem snúa í vestur.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápar.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað, flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski, flísalagður sturtuklefi með glerhlið, upphengt salerni, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla í kjallara (ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar), sameiginlegt
þvottahús og
hjólageymsla.
Þakjárn hússins var endurnýjað 2022
Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu 2014/2015.
Mjög góð staðsetning og mikil þjónusta í hverfinu. Stutt í skóla og leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Íþróttasvæði KR í næsta nágrenni.
Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna. Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]