Tjarnarmýri 11 170 Seltjarnarnes
Tjarnarmýri 11 , 170 Seltjarnarnes
76.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 79 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1993 52.350.000 68.100.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 79 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1993 52.350.000 68.100.000 0

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 

Falleg og björt 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu í nýlega viðgerðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi.
Íbúðinni fylgir rúmgott sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara undir húsinu.

Eignin er skráð 72,4 m² en þar að auki fylgir eigninni um 7,3 fm sérgeymsla (skv eignaskiptasamningi) í kjallara sem er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Heildarstærð eignar með geymslu er því rétt um 80 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa/hol
: Parket á gólfi, tengir saman rými íbúðarinnar, fatahengi.
Setustofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og fallegu útsýni, stofa er opin við eldhús.
Eldhús: Flísar á gólfi, svört endurnýjuð innrétting, eldunareyja sem unnt er að sitja við, opið við setustofu, útgengi á rúmgóðar, skjólsælar og sólríkar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Einnig gott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, endurnýjuð hvít innrétting undir vaski með viðarborðplötu, baðkar.

Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla í kjallara hússins sem er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði (nr 18) í lokuðum bílakjallara hússins.
Þvottahús: Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð hússins þar sem hver og ein íbúð hefur tengi.

Viðhald/endurbætur
Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu árið 2025
Þakjárn hússins var endurnýjað árið 2025
Gluggar íbúðarinnar voru endurnýjaðir (allir nema í stærra svefnherberginu) árið 2025.

Afar falleg íbúð í húsi sem hefur fengið mikið viðhald á góðum stað á Seltjarnarnesi. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu.
Húsið var byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars (Bygg).

Nánari upplýsingar
Ólafur Már Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 865-8515 / [email protected].
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.