Helguvík á álftanesi 0 225 Garðabær
Helguvík á álftanesi 0 , 225 Garðabær
188.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 202 m2
HERBERGI 6 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1971 97.000.000 141.100.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 202 m2
HERBERGI 6 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1971 97.000.000 141.100.000 0
Opið hús: 08. febrúar 2026 kl. 13:00 til 14:00.

Opið hús sunnudaginn 8. febrúar frá kl 13:00 til 14:00 - Helguvík við Höfðabraut á Álftanesi

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 

 
Einstaklega falleg eign á einni hæð með stórglæsilegu útsýni á sjávarlóð við Helguvík á Álftanesi.
Húsið stendur á 1.800 fermetra eignarlóð og nýtur óhindraðs útsýnis til sjávar - Að Reykjanesfjallgarðinum til suðausturs og í norðvestur að Snæfellsjökli.


Eignin er samtals skráð 202,7 fm (þar af bílskúr 47,2 fm).
Búið er að heimila stækkun á húsinu við húsið að sunnan og austanverðu í framhaldi af bílskúrnum og stækkun á andyrri að framanverðu, teikningar eru fyrir hendi og framvkæmdaleyfi hefur verið gefið út. Grunnflötur hússins eftir samþykktar breytingar yrði 267 fm. 
Sunnan við húsið er Skógtjörn og af baklóðinni er gott aðgengi um grjótgarðinn niður að sjó í ljósa fallega sandfjöruna. 


Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / [email protected] eða Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / [email protected]

Nánari lýsing: 
Forstofa
: Flísar á gólfi, fatahengi. Gangur er parketlagður og tengir saman rými hússins. 
Eldhús: Parket á gólfi, nýleg (2025) innrétting með góðu vinnuplássi, nýleg eldhústæki, quartz borðplötur, borðaðstaða, aukin lofthæð, gluggar með útsýni til sjávar, útgengt á timburverönd sunnan við húsið.
Setustofa: Parket á gólfi, fallegur steyptur arinn, steypt hilla/bekkur flæðir úr arni að útvegg hússins, mikið útsýni, útgengi á helluulagða verönd sunnan við húsið og þaðan er gengið um lóðina niður að sjó. Mikið útsýni í suðaustur að Reykjanesfjallgarði.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, gólfsíðir gluggar með útsýni í norður yfir Helguvík og að Snæfellsnesi. 
Aukin lofthæð er í stofum og gegnheilt eikarparket er á gólfum.

Svefngangur
Herbergi 1: Rúmgott hjónaherbegi, parket á gólfi, fataskápar, aukin lofthæð.
Herbergi 2: Gott herbergi á svefngangi við hlið hjónaherbergis, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni, baðkar, mósaík flísalagður sturtuklefi, gluggi. 
Þvottahús: Á svefngangi, flísar á gólfi, hvít innrétting með tengjum fyrir vélar, skolvaskur, gluggi. 

Herbergi 3: Rúmgott herbergi við stofu (vinnuherbergi á teikningu), aukin lofthæð, gluggar sem snúa í vestur, útgengt á lóðina til vesturs, í vinnuherberginu er einnig salerni.
Herbergi 4: Inn af vinnuherberginu, gott herbergi með parketi á gólfi.

Garðurinn er stór og gróinn með glæsilegu útsýni.
Útgengt er á tveimur stöðum í garðinn sunnan við húsið þar sem er timburverönd að hluta og hellulagt að hluta. 
Heitur pottur er við afgirtan timburpallinn sunnan við húsið. Þar fyrir framan er stórt tyrft svæði sem nær niður að grjótgarði við sjóinn.
Aftan við bílskúrinn er kominn grunnur þar sem var áformað að byggja við húsið, búið er að jarðvegsskipta.

Tvöfaldur bílskúr við innkeyrslu er áfastur við húsið. Bílskúrinn er tvískiptur, nær götu er stór geymsla með hillum á sitthvora höndina, í syðri hlutanum er opið rými með aukinni lofthæð og nýlega endurnýjuðum gluggum upp við loft sem hleypa inn mikilli birtu. 

Falleg aðkoma er að húsinu með malarborinni innkeyrslu og steyptu sorptunnuskýli. Lóðin norðan við húsið er tyrfð.

Einstök staðsetning við hafið og óspillta náttúru. 

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.