Álftamýri 34 108 Reykjavík (Austurbær)
Álftamýri 34 , 108 Reykjavík (Austurbær)
73.500.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 109 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1964 49.640.000 70.950.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 109 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1964 49.640.000 70.950.000 0
Opið hús: 24. febrúar 2026 kl. 16:30 til 17:15.

Opið hús þriðjudaginn 24. febrúar frá kl 16:30 til 17:15 - Álftamýri 34, 108 Reykjavík

Falleg, vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt bílskúr í góðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað við Álftamýri 34
Eignin er skráð 109,8 fm hjá HMS (þar af sérgeymsla í kjallara 6,6 fm og bílskúr 20,9 fm).


Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 

Lýsing eignar:
Forstofa/hol:
Parket á gólfi, fatahengi.
Eldhús: Á vinstri hönd við inngang, endurnýjað fyrir tveimur árum, hvít HTH innrétting með mjög góðu skápa og vinnuplássi, flísar á gólfi, barborðkrókur, gluggi.
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt, gegnheilt parket á gólfi, útgengi á skjólgóðar og sólríkar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, nýlega endurnýjaðir hvítir fataskápar.
Svefnherbergi 2: Gott barnaherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, viðarinnrétting undir vaski, upphengt salerni, baðkar.

Gegnheilt parket er á gólfum íbúðarinnar nema eldhúsi og baðherbergi sem eru flísalögð. Parketið var slípað upp og lakkað fyrir tveimur árum.

Bílskúr í bílskúralengju til móts við húsið fylgir eigninni, bílskúrinn er 20,9 fm og er með hita, rafmagni, rennandi vatni og loftglugga.
Eigninni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins
Eigninni fylgir aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara hússins þar sem hver og ein íbúð hefur tengi. Sameiginleg hjóla & vagnageymsla er einnig í kjallara hússins.

Viðhald/endurbætur
2017-2018 var húsið sprunguviðgert og málað.
2017 var þakjárn hússins endurnýjað og soðinn dúkur/þakklæðning settur yfir bílskúra.
Raflagnir innan íbúðar voru endurnýjaðar árið 2024.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.