Jöfursbás 11E 112 Reykjavík (Grafarvogur)
Jöfursbás 11E , 112 Reykjavík (Grafarvogur)
58.500.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 66 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2021 42.550.000 59.550.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 66 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2021 42.550.000 59.550.000 0
Opið hús: 23. mars 2026 kl. 16:45 til 17:15.

Opið hús mánudaginn 23. mars frá kl 16:45 til 17:15 - Jöfursbás 11E - íbúð 0208

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:


Falleg og mjög vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með sérinngangi við Jöfursbás við sjávarsíðuna í Grafarvogi (Gufunesi).
Vestursvalir með mjög fallegu útsýni út á sjóinn. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Sérinngangur af útisvölum. 
Heimild fyrir dýrahaldi er í húsinu. 


Forgang að kaupum á íbúðinni hafa einstaklingar á aldrinum 18-40 ára. Forgangurinn er virkur á fyrstu 12 vikunum sem íbúðin er auglýst til sölu.

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / [email protected]

Lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápar. 
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, eyja áföst við vegg, harðparket á gólfi, gluggi.
Stofa: Björt stofa er opin við eldhús, harðparket á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í vestur og njóta útsýnis út á sjóinn.
Svefnherbergi 1: Við stofu, tvær vegginnfelldar rennihurðir, harðparket á gólfi, fataskápar.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 3: Einnig gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Dúkur á gólfi, hvít innrétting undir vaski, sturtuklefi með gler-rennihurðum, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Sameiginleg hjólageymsla og þvottahús er á jarðhæð. Í sameign er einnig vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta leigt og pósthólfin á einum stað.
Íbúðirnar hafa haft afnot af matjurtargarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11.  

Íbúðir Þorpsins vistfélags eru á sjávarlóð í nýju hverfi í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey.  Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi.
Í Gufunesi verður blönduð byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnurekstur, skapandi iðnað, menningu, menntun, sýningar- og atburði, ferðamannaiðnað og sjálfbærar samgöngur. Gufunesið verður þannig einstakt hverfi í borginni þar sem iðnaðarmannvirki, manngert landslag, afþreying- og útivist og stórfengleg fjallasýn við sjávarsíðu mynda órjúfanlega heild. 


Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.