Opið hús: 16. júní 2026 kl. 16:45 til 17:30.
Opið hús þriðjudaginn 16. júní frá kl 16:45 til 17:30 - Flyðrugrandi 16, 107 Reykjavík - íbúð 0309
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Einstaklega glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð við Flyðrugranda 16 á afar eftirsóttum stað í Vesturbænum.Eignin er skráð 73 fm - þar af sérgeymsla í kjallara 5,5 fm.
Lýsing eignar:
Forstofa: Harðparket á gólfi, fatahengi.
Eldhús: Svört mött viðarinnrétting, eldunareyja sem unnt er að sitja við, marmaraborðplata á eyjunni, gott skápapláss, harðparket á gólfi, opið við stofu.
Setustofa: rúmgóð og björt, harðparket á gólfi, útgengi á stórar svalir sem snúa í suður, svalirnar sem eru mjög skjólgóðar og sólríkar eru mikil viðbót við íbúðina.
Borðstofa: Við stofu, gluggi að svefnherberginu, borðstofan er svefnherbergi á teikningu
og væri einfalt mál að loka aftur og nýta sem svefnherbergi.Baðherbergi: Glæsilega endurnýjað fyrir fáeinum árum, flísar á veggjum og gólfi, steyptur og flísalagður sturtuklefi með skyggðu gleri á einni hlið, sambyggð borðplata og vaskur frá Kuma, upphengt salerni, baklýstur spegill. Vönduð Grohe blöndunartæki í vaski og sturtu sem eru innbyggð í vegginn.
Svefnherbergi: Falleg gler vængjahurð með stálumgjörð, miklir nýlegir fataskápar, harðparket á gólfi, gluggi.
Íbúðinni fylgir aðgangur að
sameiginlegu þvottahúsi á hæðinni. Sameiginlegt með íbúðum hæðarinnar.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla á
jarðhæð hússins.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð þaðan sem útgengt er beint út í garðinn. Einnig er sameiginlegt
leikherbergi á jarðhæð hússins, salerni og útgengt í garð hússins.
Á þakhæð er sameiginlegt
gufubað fyrir íbúðir stigahússins nr. 16.
Viðhald/endurbætur:Gler, gluggar og svalahurð innan íbúðar voru endurnýjuð 2018, nema innsti glugginn í svefnherberginu.
Þakdúkur hússins var endurnýjaður 2008.
Frábær staðsetning og barnvænt umhverfi - stutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði KR. Öll helsta verslun og þjónusta í næsta nágrenni - göngufæri við miðborgina og Háskólann.
Melabúðin og sundlaug Vesturbæjar í næsta nágrenni. Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]