Opið hús: 18. júní 2026 kl. 16:45 til 17:30.
Opið hús fimmtudaginn 18. júní frá kl 16:45 til 17:30 - Kambasel 4, 109 ReykjavíkHíbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum í rólegum botnlanga í Seljahverfi í Breiðholti. Í húsinu eru
fjögur svefnherbergi.
Bílskúr er áfastur húsinu og að hluta innbyggður í húsið. Ofan á bílskúrnum eru stórar og góðar svalir sem snúa í suðvestur.
Á baklóð hússins er stór timburverönd með skjólveggjum og fallegum gróðri. Stórt geymsluloft er í þakrými/geymslurými, ca 40 fm að gólffleti og er ekki skráð í birta fermatratölu.
Húsið er skráð 179,1 fm (þar af bílskúr 23,7 fm) Hellulagt
bílaplan með hitalögnum undir er framan við húsið, stæði fyrir tvo bíla.
Nánari lýsing:
Forstofa Flísar á gólfi og fatahengi, sérsmíðuð glerhurð úr Birgisson. Úr forstofu er komið inn í hol sem tengir saman rými neðri hæðarinar, flísar eru á gólfi. Flísar á forstofu og holi eru frá Birgisson.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og gólfi, sturtu með glervegg, hvítri innréttingu undir vaski, upphengdu salerni.
Fjögur svefnherbergi eru á neðri hæðinni,
þrjú barnaherbergi og
hjónaherbergi sem er með útgengi í bakgarð hússins sem er með timburverönd og skjólveggjum. Nýlega endurnýjaðir fataskápar í öllum herbergjum og nýlegt harðparket úr Birgisson er í öllum svefnherbergjum.
Gengið um steyptan stiga upp á efri hæð hússins þar sem eru samliggjandi setustofa, borðstofa og eldhús.
Eldhús er stórt með endurnýjaðri HTH innréttingu, hiti í gólfi, stór borðkrókur og gluggar. Flísar á gólfum.
Setustofa er rúmgóð og björt, eikarparket er á gólfum. Úr setustofu er útgengi á stórar svalir sem snúa í vestur og eru ofaná bílskúrnum.
Gestasalerni er á efri hæðinni, nýlega uppgert, flísar eru á gólfi og á veggjum að hluta, upphengt salerni, hvít innrétting undir vaski.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er þvottahús með góðri vinnuaðstöðu, innréttingu og glugga.
Geymsla: Stórt geymsluloft yfir allri efri hæðinni sem farið er uppá um fellistiga í lofti úr þvottaherberginu.
Bílskúr: Ekki er innangengt í skúrinn úr húsinu en hefðbundin inngönguhurð er í skúrinn við aðalinngang hússins. Bílskúrinn er með hita, rafmagni og rennandi vatni.
Viðhald/endurbætur. Á undanförnum árum hefur eldhús verið endurnýjað, innihurðir endurnýjaðar, raflagnir hússins hafa sömuleiðis verið endurnýjaðar og tafla á efri hæð, nýir fataskápar eru í öllum svefnherbergjum.
Húsið var málað að utanverðu í maí 2026. Hitagrind og þrýstijafnari fyrir húsið hafa einnig nýlega verið endurnýjuð.
Fimm gluggar á suðurhlið hússins hafa verið endurnýjaðir.
Vel staðsett fjölskylduhús efst í botnlanga efst í Seljahverfinu. Seljaskóli, leikskólar, íþrótta- og leiksvæði og verslun eru í göngufæri. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali í síma 864-8800 / [email protected] eða Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali 865-8515 / [email protected]