Opið hús: 02. júlí 2026 kl. 16:45 til 17:30.
Opið hús fimmtudaginn 2. júlí frá kl 16:45 til 17:30 - Fálkagata 24A - íbúð 0101
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Falleg og björt 2ja herbergja íbúð á frábærum stað við Fálkagötu í Vesturbænum.Eignin er skráð 47,9 fm (þar af að auki fylgir
lítil geymsla undir innistiga)
Lýsing eignar:Forstofa: Nýtt harðparket á gólfi, fatahengi.
Gangur við forstofu er með harðparketi á gólfi og litlum glugga, gæti nýst sem
vinnuaðstaða eða fyrir fataskápa.
Setustofa: Rúmgóð og björt, opin við eldhús að hluta, harðparket á gólfi.
Eldhús: Nýlega endurnýjuð viðarinnrétting, gott skápapláss, harðparket á gólfi, borðkrókur.
Svefnherbergi: Gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, sturta, handklæðaofn.
Sérgeymsla íbúðarinnar er undir innistiga.
Í kjallara fylgir íbúðinni aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi.Aftan við húsið er fallegur afgirtur sameiginlegur garður og sameiginleg verönd með fallegum garðhúsgögnum.Viðhald/endurbæturÞakjárn hússins var endurnýjað árið 2023
Allir gluggar íbúðarinnar (nema litli gaflglugginn) voru endurnýjaðir árið 2020
Nýtt harðparket lagt á íbúðina 2026.
Frábær staðsetning í grónu íbúðarhverfi, göngufæri við miðborgina.
Háskóli Íslands í næsta nágrenni ásamt Vesturbæjarlauginni, Kaffihúsi Vesturbæjar, Brauð og co, fjölda leikvalla og útivistarsvæðum við Ægisíðuna.Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]