Kleppsvegur 32 105 Reykjavík (Austurbær)
Kleppsvegur 32 , 105 Reykjavík (Austurbær)
54.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 60 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1971 29.350.000 50.450.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 60 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1971 29.350.000 50.450.000 0
Opið hús: 13. júlí 2026 kl. 16:30 til 17:15.

Opið hús mánudaginn 13. júlí milli kl. 16:30 - 17:15.

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:  

Mjög góð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbylishúsi sem snýr að Brekkulæk.

Lýsing eignar:

Íbúðin er 60,4 fm og snýr öll út í sameiginlegan garð hjá blokkinni.
Hol: Komið er inn í rúmgott hol með mjög góðum fataskápum.
Eldhús: Gengið inn í eldhús úr holi, þar er upphafleg innrétting með massífri beykiborðplötu. Stór gluggi, lítill borðkrókur með áföstu háu borði.
Svefnherbergi: parket á gólfi, útgengt á svalir sem vísa út í garðinn.
Gengt svefnherbergi er snyrtilegt baðherbergi með baði og nýlegum vask og
blöndunartækjum.
Fyrir enda gangsins er rúmgóð stofa með parketi á gólfi. 
Lítið þvottahús innan íbúðar sem var nýlega innréttað.

Íbúðinni fylgir góð sér geymsla sem er á jarðhæð hússins og þar er einnig sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara. 
Sameiginlega þvotthúsið var málað í hólf og gólf ásamt gólfi í geymslugangi í nóvember s.l.

Húsið var múrviðgert og málað sumarið 2025.

Rafhleðslustöðvar eru á lóð bak við blokkina sem íbúar hafa aðgang að.

Sameign er snyrtileg, teppi á stigagangi endurnýjuð, stigagangur málaður og skipt um dyrasímakerfi í húsinu fyrir nokkrum árum.

Mjög snyrtileg og falleg eign, stutt í verslanir, grunnskóla, listaháskólann, sund og útivistarsvæði.

Góð íbúð á eftirsóttum stað - stutt í alla helstu verslun og þjónustu
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.